Strúna, ein með öllu
Blessuð dýrin
Tær Sniiiiiilllld!!!!!
Dagsetning
29. janúar 2012
20.07.2010 14:26:34 / struna

Og AFTUR hafði ég gleymt lykilorðinu

En ég fékk nýtt í pósti. Þær/Þau/Þeir þarna hjá BlogCentarlpunkturis fara örugglega að þekkja mig
Hér er fínt að vera, svona næstum eins og í sumarbústað á kyrrlátum stað. Allir hinir eru jú á Facebook. Mér sýnist margir vera farnir að fækka blokkfærslunum sínum og jafnvel alveg horfnir. Feisbúkkin búin að gleypa þá.Ég held ég haldi mig bara hér. Síðan ég skráði mig á Facebook á ég færri vini en áður. Ég á samt tæplega 500! vini þar. Ég dæli og dæli inn efni sem mér finnst áhugavert, set ýmislegt í status sem mér finnst alveg bráðfyndið, en fáir, jafnvel engir "læka" mig né "commentera". Ætli ég dæli of miklu inn? Kannski eru bara allir búnir að "hæda" mig? Hver veit
Ég er að flytja, eina ferðina enn, held þetta sé 9. eða 10. staðurinn sem ég bý á síðan ég flutti heim frá Svíþjóð 1999. Góða við þetta er að ég á orðið ekki neitt, dótið týnist af mér eins og fjaðrir af fugli. NEMA BÆKURNAR! Mikið skratti eru þær þungar, en ég bara tími ekki að láta þær fara. Sumar eru orðnar meira snjáðar af flutningum en lestri. Segi alltaf NÆST ætla ég að grisja bækurna;)

» 31 hafa sagt sína skoðun

30.12.2009 09:51:04 / struna

Gleymt lykilorð


Jamm, svo langt síðan, að lykilorðið var gleymt
Þurfti að fá nýtt í pósti
Spurning um að hætta þessu eða taka þetta föstum tökum
Þarf að hugsa


» 21 hafa sagt sína skoðun

22.05.2009 01:54:59 / struna

breyting


merkilegt hve heimurinn verður öðruvísi þegar maður verður að nota hækjur
grænar hækjur


» 27 hafa sagt sína skoðun

09.04.2009 15:56:57 / struna

best

að vera bara ég sjálf
held það bara


» 19 hafa sagt sína skoðun

22.03.2009 19:08:52 / struna

ég held


að ég sé áfram pínu sorgmædd
hvort ég get skrifað um það er svo annað mál
kannski get ég skrifað um það seinna ef ég held áfram að vera sorgmædd
kannski skrifa ég ekkert um það ef ég hætti að vera sorgmædd
kemur í ljós

fór á ball í gærkvöldi
spaðaball
hálf blönk en ákvað að fara samt
átti von á fari heim, en farið stakk mig óvart af
ég var blönk á röltinu heim í roki, slyddu og kulda
þegar mér datt í hug að senda sms á vin min úti á landi
hann setti 2000 kall inn á kortið mitt og ég náði mér í taxa heim
við spjölluðum á leiðinni ég og taxidræverinn
spjallið byrjaði á unga fólkinu og skyndibita
og þróaðist í það að hann varð sextugur um daginn og hefur aldrei drukkið gosdrykki
hann hlustaði á erindi í útvarpinu sem barn sem ævar kvaran hélt
um heilsu og líkama
hann tók ákvörðun þá og hefur aldrei tekið verkjatöflu um æfina
hann borðar helling af bláberjum og notar þar af leiðandi ekki gleraugu
hann slökkti á mælinum fyrir utan hjá mér og við spjölluðum
allt þetta kom til vegna þess að ég sá móðu á rúðu á skyndibitastað
sem iðaði af ungu fólki að borða pizzu
merkilegt hvert umræður leiðast
takk fyrir tæknina, þannig átti ég fyrir taxanum
og fyrir peninginn fékk ég skemmtilegt samtal
spaðarnir fengu fullt hús, gólfið iðaði
ég er samt ekki alltof hrifin af tónlistinni þeirra
svosem ok í 1-2 klt
ekki meira
veit ekki hvort ég fer næst


» 19 hafa sagt sína skoðun

21.03.2009 10:19:39 / struna

Ég er


sorgmædd  :(



» 32 hafa sagt sína skoðun

18.03.2009 03:21:42 / struna

Vá! Nú þekki ég mig loksins hér


Nú kannast ég við mig hér, enda búin að breyta útliti síðunnar aftur, þetta var algjör horror

Af mér er það að frétta að ég stundaði ræktina grimmt, stundaði einaþjálfaranámið líka tók próf og alles, eftir það hætti ég að mæta í ræktina

Ég stundaði sundið grimmt, lærði skriðsund og tók á endanum laugarvarðarpróf, eftir það hætti ég að mæta i sund

Ég tók mataræðið í gegn, henti út allri óhollustu og grennti mig um 25 kg yfir einn vetur, ég fór í sukkið aftur og er í  stanslausum slag við vigtina

Af þessu dreg ég þann lærdóm að ekkert er komið til að vera
Svo er bara spurningin hvort/hvað/hvenær ég geri eitthvað í þessu


» 26 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 02:22:30 / struna

Sorry blogg


Munaði engu að ég myndi ekki logg inn ið mitt hingað, langt síðan ég hef kíkt inn
Þekkti mig svo ekki hér inni, var búin að gleyma að ég var að fikta í öllum stillingum síðast þegar ég var hér. Þetta umhverfi er hundljótt, en man ekkert hvernig á að breyta því til baka

Feisbókin er að taka yfir öllu, margir hættir að blogga eins oft og þeir gerðu, ég líka.
Sorry bloggið mitt, skal vera duglegri að kíkja á þig





» 25 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 03:22:44 / struna

mér barst bréf


og lofaði að koma því til skila:

Please read and take action where and if at all possible.
With Love,
Homeopathy Under Attack

We've just received the following letter from Jeremy Sherr - please take some time to read, respond, and pass along....

My homoeopathic friends,

In the past few days the Tanzanian AIDS project and I have become the target of the "anti homoeopathy" attackers in the UK. They have posted on both my blog, the "gimpyblog" http://gimpyblog. wordpress. com/ <http://wholehealthn ow.c.topica. com/maamLJpabNzq BbQhCfNeaehqiC/> and others with inflammatory speculation and erroneous conclusions about the Homoeopathy AIDS project.

We would like to bring this to the attention of the larger homoeopathic community. As many of you know, there has been an ongoing campaign to discredit and annihilate homoeopathy in the UK by posting false information and unfounded and inflammatory opinions. Their battlefield has now expanded to Tanzania.

In the attacks on the Tanzanian AIDS project they took parts of my blog and previous interviews from my website archives and contrived a story in order to further their desire to malign homoeopathy. They allege that I am persuading patients to use homoeopathy in place of ARVs, which is totally untrue. They claim that any research of homoeopathy is unethical as there is no proof that homoeopathy works. They even went so far as to claim that my treating AIDS patients in Tanzania with homoeopathy will lead to mass murder. These accusations are not only malicious, they are libelous.
Their tactics were not confined to regurgitation their thoughts online. One follower even phoned a UK organization that supports the AIDS project and also contacted UK and Tanzanian government officials, claiming that there was an 'unethical' project taking place.

I am urging the global homoeopathic community to rise up in solidarity.

This is a tiny but dedicated faction who uses the internet blogs and the media to amplify their spurious attacks.

They have stated that they are determined to kill homoeopathy.

They have had negative impact on the availability of homoeopathy in the UK and are responsible for the closing of homoeopathy hospitals and clinics as a direct consequence of their campaign.

Here are some ways to show your support for the work of all homoeopaths worldwide and for the Tanzanian AIDS clinic.

1. MEET THEM ON THEIR OWN GROUND: Flood their blogs http://gimpyblog. wordpress. com/ <http://wholehealthn ow.c.topica. com/maamLJpabNzq BbQhCfNeaehqiC/> with posts on the benefits of homeopathy, using examples of your own experiences. They can argue endlessly about the theory, but what do they say to the hundreds of thousands of people who have had improved health?

2. USE THE INTERNET TO AMPLIFY HOMOEOPATHY' S VOICE.
Go to my blog and post your supportive comments on http://www.jeremysj ournalfromafrica .blogspot. com <http://wholehealthn ow.c.topica. com/maamLJpabNx7 vbQhCfNeaehqiC/>
Let anyone visiting the blog see the overwhelming support for this project and homoeopathy in general. To learn more about the project, see my website http://www.dynamis. edu <http://wholehealthn ow.c.topica. com/maamLJpabNx7 xbQhCfNeaehqiC/>

3. PUT A STOP TO THESE ATTACKS. Homoeopathy is our beloved profession, our mission in life. Respond vigorously to any attempts to intimidate practitioners or to denigrate your passion to bring our gentle healing to others, wherever they may live.

Meanwhile, I am returning to Tanzania to continue treating AIDS patients. In my first six weeks I have treated 100 AIDS patients with very promising results. We have a clinic administrator in the north where a high percent of the people have AIDS and where there are very few medical institutions. The situation is worse than I could ever have imagined, worse than anything shown on television or written in books. The patients are eager to use homoeopathy and I am eager to help them.

I and my colleagues are fully committed to establishing a treatment, teaching and research center in Tanzania. This is homoeopathy' s chance to shine. Please join us!

Please pass this message on to fellow homoeopaths.


RESPONSE POSTED ON www.jeremysjournalf romafrica. blogspot. com <http://wholehealthn ow.c.topica. com/maamLJpabNx7 vbQhCfNeaehqiC/>

The Inquisition

How predictable; the Pharmaceutical Inquisition have discovered my site and they are squawking away in a hysterical frenzy. I take this as a compliment and thank them for the publicity. Alas, the pharma-inquisition has a nasty little habit of nit picking other peoples blogs as if they were a scientific document, misstating issues, taking them out of context and amplifying them into a malevolent distortion of truth. For their benefit I will STATE THE FACTS CLEARLY: 1. We have never offered, advertised, advocated or suggested homoeopathy as an alternative to ARVs to any AIDS patients in Tanzania or elsewhere. Not one patient has BEEN PERSUADED TO STOP or has been prevented from taking conventional medication as a result of our treatment. Most of the patients I treat are currently on ARVs. All patients have received prior medical advice. Any suggestion to the contrary is pure fabrication, as well as libelous. 2. At this time I am not involved in any homoeopathic research in Tanzania or elsewhere. I very much hope to undertake some research but as yet there is no proposal, so that anything I have written in my blog is my personal musing on the subject and not a research proposal. As far as I know musing is still legal and ethical. 3. Any research I may undertake will be subject to rigorous ethical review of the highest standard. 4. In the event that there is research, there would be no suggestion or pressure on patients to use homoeopathy. Or to stop ARVs. This should be obvious as it is standard procedure in a research trial to prevent bias. I hope that is clear enough. I have no doubt the pharma-inquisition will try to take this apart too. They just can't help it. Quite sad. I regret having to spend time dealing with prejudiced dinosaurs who regurgitate what they already believe in from the safety of their anonymous blogs. I would much rather spend my time treating those who need help and choose homoeopathy, or at the least discuss things with open minded people who are not stuck in the Dark Ages.



WholeHealthNow, 1830 E Interstate 30, Rockwall TX 75087-6241

Customer Service: 888 722-5423

Technical Support: 619 424-9928

http://www.WholeHea lthNow.com <http://wholehealthn ow.c.topica. com/maamLJpabNx7 dbQhCfNeaehqiC/>

» 26 hafa sagt sína skoðun

22.01.2009 20:07:17 / struna

mér leiðist

Mér leiðist
Nenni ekki í bæinn að mótmæla
Er bara heima að mótmæla í hljóði
Nenni ekki að taka úr þvottavélinni
Nenni ekki að vaska upp
Nenni ekki að taka blóðþrýstinginn
Nenni ekki að lesa blogg hjá öðrum
Nenni ekki að læra
Nenni ekki að læra á nýju digggggital myndavélina mína
Mér leiðist
Nenni ekki að sækja glas og hella kókinu sem ég var að kaupa í það
Nenni ekki að teygja mig í fjarstýringuna og skipta af stöð2 sem er orðin rugluð
Afhverju er ég ekki með stöð2?
Nenni ekki að athuga dagbókina mína fyrir morgundaginn
Djöfull leiðist mér
Nenni varla að klóra mér í nefinu!
Afhverju leiðist mér?
Þetta er örugglega eitthvað matartengt
Núna var ég smá gáfuð
En samt leiðist mér
Ætla undir sæng að hugsa um afhverju mér leiðist
Nennir einhver að skipta um stöð?


» 19 hafa sagt sína skoðun

03.01.2009 06:17:48 / struna

er það svo?


Zen-meistarinn Hakuin bjó í borg einni í Japan. Hann var mikils metinn og margir lögðu leið sína til hans til að njóta andlegrar fræðslu. Svo gerðist það að unglingsstúlka, dóttir nágranna í næsta húsi, varð ófrísk. Þegar fokreiðir foreldrar stúlkunnar gengu á hana og kröfðu hana um faðernið sagði hún þeim um síðir að farðirinn væri Hakuin, zen-meistarinn sjálfur. Foreldrarnir skunduðu yfir til Hakuins öskureiðir, æptu að honum og sögðu dóttur sína hafa játað að hann væri faðirinn.  "Er það svo?" var hið eina sem honum varð að orði.

Hneykslisfréttin flaug eins og eldur í sinu um borgina og nágrennið. Meistarinn glataði því orði sem af honum fór. Það angraði hann ekki hið minnsta. Enginn kom lengur til fundar við hann. Hann lét það ekki á sig fá. Þegar barnið fæddist báru foreldrarnir það til Hakuins. "Þú ert faðirinn, svo það er best að þú sjáir um hann."  Meistarinn annaðist barnið af stakri alúð. Þegar ár var liðið iðraðist móðirin og játaði fyrir foreldrum sínum að faðir barnsins væri í reyndinni ungi maðurinn sem vann í búðinni hjá slátraranum. Foreldrarnir gengur yfir til Hakuins stórlega miður sín, báðu hann afsökunar og beiddust fyrirgefningar. "Okkur þykir þetta afskaplega leitt. Við erum komin til að sækja barnið. Dóttir okkar játaði að þú værir ekki faðirinn." "Er það svo?" varð honum að orði þegar hann afhenti þeim barnungann.

Meistarinn bregst við lygum og sannleika, vondum fréttum og góðum, á nákvæmlega sama hátt: "Er það svo?" Hann leyfir formi andartaksins, góðu eða vondu, að vera eins og það er og verður þannig ekki þátttakandi í mannlegu sjónarspili. Í hans vitund er aðeins þetta andartak, og þetta andartak er eins og það er. Atburðir er ekki persónugerðir. Hann er ekki fórnarlamb neins. Hann er svo fullkomlega eitt með því sem gerist að það sem gerist hefur ekkert vald yfir honum lengur. Það er aðeins ef þú streitist á mót því sem gerist sem þú ert á valdi þess sem gerist, og heimurinn ákvarðar hamingju þína og óhamingju.

Það er litið eftir barninu með ástúð og umhyggju. Vont verður gott vegna máttar mótspyrnuleysisins. Hann bregst alltaf við því sem andartakið krefst og sleppir barninu þegar sá tími er kemur.

Gerðu þér sem snöggvast í hugalund hvernig égið hefði brugðist við á mismunandi stigum þessarar atburðarrásar.

(tekið úr bókinni Ný Jörð eftir Eckhart Tolle, kaflanum Hver þú ert í reynd. Snilldarbók)



» 24 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 22:28:33 / struna

Jólahefðir


Þegar ég bjó í Svíþjóð í denn voru vissir sjónvarpsþættir sem voru alltaf, alltaf sýndir um jólin.
Ég man sérstaklega eftir barnamynd sem heitir "Kan du vissla Johanna?" (Geturðu blístrað Johanna?) sem fjallar um nokkra krakka og gamlan mann á dvalarheimili, aldelis falleg og skemmtileg mynd. Hún bara tilheyrði jólunum.
Eins var og er enn hef ég heyrt alltaf sýnd sama gamla myndin um gamla hefðardömu og þjóninn hennar á gamlárskvöld, bara eitt "must", annars er ekkert gamlárskvöld

Nú legg ég til að myndin "Kjötborg" sem sýnd var í kvöld í ríkissjónvarpinu verði gerð að jóldagsmyndinni. Alveg sérlega falleg og einlæg mynd um verslunarbræðurnar í vesturbænum. Myndin er hrein snilld, vel tekin, fallegir litir, fallegur boðskapur, enda verðlaunamynd
Skemmtilegt atriði þegar eldri borgari í hverfinu, er í mótþróa við matinn sem honum er sendur heim, svo hann pantar samloku símleiðis hjá bræðrunum og annar þeirra sendist með hana heim til þess gamla, klifrar yfir grindverk og smeygir þessu inn um kjallaragluggann hjá honum
Og eða gamla konan, sem að ráðum bræðranna kaupir hjá þeim vítamín, þrír freyðistaukar sem hún sýnir í eldhússkápnum sínum, og segist allt önnur manneskja eftir að hún fór að inntaka þessi vítamín
Ég bæði hló, kímdi, táraðist og glotti á meðan ég horfði á hana
Gæti hugsað mér að gera þetta að heilagri stund á hverju ári




» 19 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 11:34:26 / struna

pæling nr 1


afhverju fæ ég aldrei að tala í útvarpinu?

og afhverju kann ég ekki að setja mynd inn með þessu?


» 23 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 08:45:01 / struna

hugdettur


ég kíki á nokkurra daga fresti á bloggið hans eiriks jónssonar á dv.is
ég þekki manninn ekki baun, en kann vel við bloggstílinn hans
honum tekst yfirleitt að segja mikið með fáeinum orðum og snilldarmyndir fylgja með
og yfirleitt kitlar lesturinn og eða myndirnar hláturtaugarnar

en það merkilega er, að mér finnst alltaf þetta vera mitt blogg, að ég hafi skrifað þetta, nema, mér dettur það ekki í hug fyrr en ég er búin að lesa það sem hann hefur skrifar
merkilegt
ég ætla að prófa að taka hann mér til fyrirmyndar á næstunni, þ.e. að blogga bara allt sem mér dettur í hug og það mörgum sinnum á dag, en ætla að gera það án þess að lesa hans
humm
verst að ég er ekki með prófarkalesara eins og hann
og ætli ég nái hans snilld í myndskreytingum?
læt á þetta reyna




» 25 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Klukkan